• Sandkorn: Stúdering á Svörtu söndum

  • De: TV/BZ
  • Podcast

Sandkorn: Stúdering á Svörtu söndum  Por  arte de portada

Sandkorn: Stúdering á Svörtu söndum

De: TV/BZ
  • Resumen

  • Eitthvað grasserar á Glerársöndum og margir búast við svörum. Baldvin Z kvikmyndagerðarmaður og Tómas Valgeirsson bíófíkill grandskoða sjónvarpsþættina Svörtu sanda frá ólíkum hliðum. Vangaveltur neytandans koma ferskar að skaparanum, en Tómas kemur með getspár, kenningar og fyrirspurnir á meðan þeir í sameiningu varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónurnar, þemu og myndlíkingar. Þá er líka stutt í sturlaðar staðreyndir á bakvið gerð seríunnar og um kvikmyndagerð eins og hún leggur sig. Hefst þá stúderingin. Athugið að samtölin kunna að hafa verið hljóðrituð.
    TV/BZ
    Más Menos
activate_primeday_promo_in_buybox_DT
Episodios
  • Saman í sandkassa
    Feb 12 2022

    Er ævintýrum Svörtu sanda lokið? Gæti verið að það sé pláss fyrir framhald og þar af leiðandi aðra seríu?

    Í þessum hátíðlega aukaþætti Sandkorna taka þeir Tómas og Baldvin á móti helstu leikendum syrpunnar. Þau deila á milli sín sögum, fróðleiksmolum og nýtíðindum, allt sem að baki var og það sem bíður í nálægri (sem fjarlægri) framtíð.

    Berlinale, sería tvö, leiktækni, undanþágur vegna Covid og væntingar og viðtökur áhorfenda eru á meðal umræðuefna, ásamt því hvort til séu náriðlar með hjarta, hvernig var fyrir alla að vinna í miðjum heimsfaraldri, ketilbjöllum Ævars Þórs o.fl.

    Velkomin í Sandkassann (e. „cast-castið“). Þáttastjórnendur taka á móti Aldísi Amah Hamilton, Kolbeini Arnbjörnssyni, Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, Þór Tulinius og Ævari víkingamanni.


    Efnisyfirlit:

    00:00⁠ - Inngangur + Ævar víkingamaður

    ⁠06:00⁠ - ⁠Traust samband um ekkert traust

    ⁠09:00⁠ - Næmni Salómons

    ⁠11:24⁠ - ⁠Að vera eða vera ekki náriðill

    ⁠13:20⁠ - ⁠Harkan frá Se7en

    ⁠19:00⁠ - ⁠Eins og barn í nammibúð

    ⁠22:00⁠ - ⁠Elín og leikarainnistæðan

    ⁠25:00⁠ - ⁠Krúttlegasta lögga Íslandssögunnar

    ⁠26:00⁠ - ⁠Vinnufriður þökk sé COVID

    ⁠30:20⁠ - ⁠Hvað er svona merkilegt við Berlín?

    ⁠35:40⁠ - ⁠Þegar stórt er spurt um seríu tvö

    ⁠36:30⁠ - ⁠Samkennd og innsæi

    ⁠42:35⁠ - ⁠Geirar mega flokka sér

    ⁠46:40⁠ - ⁠Löggur eru líka fólk

    ⁠48:40⁠ - Kindin ógurlega; gúrme eða gubb?

    ⁠50:50⁠ - ⁠Kaldir dagar á setti og næstu kaflar

    ⁠53:45⁠ - ⁠Listin að túlka meingallað fólk

    ⁠1:05:00⁠ - ⁠Hver er EKKI morðinginn?

    ⁠1:08:00⁠ - ⁠Gústi, Raggi og útlendingahatrið

    ⁠1:16:30⁠ - ⁠Steinunn Ólína opnar sig

    ⁠1:21:00⁠ - ⁠Siðblinda og sterkur skúrkur

    ⁠1:23:00⁠ - Viskan, læknarnir og óvænt gjöf

    Más Menos
    1 h y 27 m
  • 8. Búið og blessuð börnin
    Jan 31 2022

    Móðurhjarta í rústum, dauðsföllum fjölgar, mömmustrákur með magnandi berserksgang og allar byssur komnar á loft. Nú er engin æfing, allt komið í há(drama)gír og má vont síður versna hjá Anítu á þessu stigi, en neyðin kennir naktri konu að spinna á meðan allt er á suðupunkti og ómögulegt er að aðskilja starfið frá persónulega lífinu.

    Tómas og Baldvin hafa margt að ræða, gera upp, endurskoða, spekúlera og skella upp úr yfir á meðan horft er yfir fjörið í alvörunni.

    Baldvin lítur yfir stærra ferðalagið, hvernig hugmyndin var á bak við stysta þátt seríunnar sem þó inniheldur 14 mínútna langa “klæmax” senu. Kannað er grimmt og hressilega hvort allt komi heim og saman á þessari taugatrekkjandi endastöð þar sem lokauppgjör karaktera ákvarðar endanlega útkomu. Eru þræðir of opnir? Eru holur í handriti? Kemst tilfinningakjarninn til skila? Tókst vel til að gera subbuskapinn smekklegan? Stenst þetta allt undir tilsettum krafti og hvaða fleiri páskaegg gætu hafa farið fram hjá áhorfendum í gegnum alla þáttaröðina?

    Tómas gerir upp getspárnar og tilviljanirnar í gegnum innslögin með leikstjóranum á vikunum liðnum. Kemst tilfinningakjarninn til skila? Stenst þetta allt undir tilsettum krafti og hvaða fleiri páskaegg gætu hafa farið framhjá áhorfendum yfir alla þáttaröðina?

    Það sem hófst hjá Zetunni með áhrifum Twin Peaks endaði með lofsöng til hinnar sígildu Se7en frá David Fincher. Þá ber að kanna hvað er í kassanum og hvernig öll heild Svörtu sanda raðast upp þegar öllu er á botninn hvolft. Þetta er stúdering lokasprettsins þar sem sérstaklega er rökrætt hvernig og hvort eigi að drepa “Kevin Spacey” sögunnar eða ekki - og síðan spyrja:

    Hvað svo?

    Más Menos
    1 h y 11 m
  • 7. Hversu milt er móðurhjartað?
    Jan 30 2022

    Oft er nauðsynlegt að stíga til baka að geta komist lengra áfram. Í sjöunda þætti Svörtu sanda er horft aftur til fortíðar og hrært vandlega í tímalínum til að varpa nánara ljósi á ógnina sem herjar á Anítu, fjölskyldu hennar og teymi innan bæjarins. Í kjölfar uppákomunnar með Helgu hefur hinn dularfulli og margumtalaði Davíð skotið loksins upp kollinum eftir margra ára fjarveru. Davíð kemur þó ekki án farangurs sjálfur á meðan dauðinn er yfirvofandi þessa dagana á Glerársandi, auk spurningarinnar um hvort móðurhöndin sé skilyrðislaust mjúk.

    Heimur Anítu farinn að hringsnúast sem aldrei fyrr á meðan áframhaldið veltur á því hvort náunganum sé treystandi og enn fremur hvort sannleikurinn geti bætt úr hlutum eða valdið frekari á verstu stundu.

    Á meðan brátt líður að stóra lokasprettinum kafa þeir Tómas og Baldvin út í sífjölgandi ‘mömmu-issjú’ seríunnar, mynstur fjöldamorðingja og hvað stóru flassbakk-senurnar segja okkur í raun um framvinduna liðnu og klæmaxinn handan við hornið. Einnig er rætt um mynstur sem og triggera Salómóns, stöðugan persónuvöxt Ragnars og kaflaskilin í lífi Fríðu. Auk þess er eitt gífurlega minnisstætt hótelherbergi og enn eftirminnilegra baðkar í tærum fókus þessa innslags ásamt óvæntri leiktækni Pálma Gestssonar og ferlið að skrifa tónlistina fyrst inn í handrit og síðan spyrja um leyfi.

    Og jú, Baldvin flytur bitastætt kvæði.

    Más Menos
    55 m

Lo que los oyentes dicen sobre Sandkorn: Stúdering á Svörtu söndum

Calificaciones medias de los clientes

Reseñas - Selecciona las pestañas a continuación para cambiar el origen de las reseñas.