Segðu mér sögu

De: Storytel Iceland
  • Resumen

  • Skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Hallgrímur Thorsteinsson kynnir hlustendur fyrir höfundum vinsælustu bóka Storytel, lesurunum á bak við tjöldin og hvað það er sem fer í gerð hverrar hljóðbókar.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Storytel Iceland
    Más Menos
activate_Holiday_promo_in_buybox_DT_T2
Episodios
  • Segðu mér sögu
    Jan 8 2020
    Hinn landsþekkti leikari Guðmundur Ólafsson er jafnframt vinsæll rithöfundur og sá eini sem tvisvar hefur hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin. Í fyrra skiptið 1986 fyrir bókina Emil og Skundi og það síðara 1998 fyrir Heljarstökk afturábak. Krakkar á öllum aldri nutu líka listilegrar frásagnargáfu hans í talsettu barnaefni á Stöð 2 í áratugi. Hér á Storytel má m.a. hlýða á einstakan flutning hans á sögunum um Emil og Skunda. Hallgrímur Thorsteinsson er einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslendinga.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    9 m
  • Segðu mér sögu
    Jan 8 2020
    Berglind Björk Jónasdóttir veit fátt jafn nærandi og að sökkva sér ofan í góða bók. „Það er ekkert sem færir mann nær núvitundinni en að týna sér í upplestri“ segir hún. Við þekkjum Berglindi Björk sem alhliða flytjanda, sem leikkonu, söngkonu og tónlistarmann, kannski einna best sem eina af þríeykinu Borgardætrum, en hér á Storytel sýnir hún á sér nýja hlið og les meðal annars Stúlkurnar á Englandsferjunni eftir danska glæpasagnahöfundinn Lone Theils. Hún segir okkur líka frá bókum föður síns, Jónasar Jónassonar útvarpsmanns, sem hún er stolt af að hafa getað fært til útgáfu hjá Storytel. 

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    8 m
  • Segðu mér sögu
    Jan 8 2020
    Arnar Jónsson steig fyrst á leiksvið hjá Leikfélagi Akureyrar 10 ára gamall. Faðir hans var formaður leikfélagsins og mamma hans, sem var frábær eftirherma, seldi miða í leikhúsið á heimilinu. Sextíu og sex árum síðar, 76 ára gamall, er Arnar enn á fullu og þau Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og eiginkona hans vinna nú að sjónvarpsútfærslu á einleiknum Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson, sem fyrir sex árum var kveðjustykki hans á sviðinu.

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    24 m

Lo que los oyentes dicen sobre Segðu mér sögu

Calificaciones medias de los clientes

Reseñas - Selecciona las pestañas a continuación para cambiar el origen de las reseñas.