Episodios

  • Fjórði þáttur: Vonandi skemmtið ykkur vel
    Jul 1 2024

    Í þessum lokaþætti fjöllum við um þá umræðu sem varð um stöðu útihátíða í upphafi aldarinnar, skoðum uppgang bæjarhátíðanna og ræðum stöðu hátíða hérlendis og framtíð þeirra.

    Viðmælendur í þættinum eru Einar Bárðarson, Birgitta Haukdal, Drífa Snædal, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Björt Sigfinnsdóttir, og Bergur Ebbi Benediktsson.


    Umsjón og dagskrárgerð: Áskell Heiðar Ásgeirsson.

    Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    1 h y 8 m
  • Þriðji þáttur: Út í fljóti
    Jul 1 2024

    Í þriðja þætti færum við okkur inn á síðasta áratug tuttugustu aldar og skoðum hvernig það kom til að útihátíðin flutti að mestu úr sveit inn í bæi landsins. Við heyrum af þekktum hátíðum eins og Eldborg 92 og Uxa 95 og fræðumst um upphaf Halló Akureyri.


    Viðmælendur í þættinum eru Stefán Pálsson, Sigríður Beinteinsdóttir, Erla Ragnarsdóttir, Davíð Rúnar, Kristinn Sæmundsson og Karl Steinar Valsson.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    50 m
  • Annar þáttur: Inn í tjaldi
    Jul 1 2024

    Í öðrum þætti tökum við fyrir blómatíma íslensku útihátíðanna sem haldnar voru í fögrum skógarrjóðrum fjarri þéttbýlinu um land allt um Verslunarmannahelgarnar á níunda áratug síðustu aldar. Stuðmenn og Ringó í Atlavík, Bindindismót í Galtalæk, risahátíðir í Húnaveri og stöðugt fjör á Þjóðhátíð.


    Viðmælendur í þættinum eru Erla Ragnarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Magnús Kjartansson, Sigríður Beinteinsdóttir og Felix Bergsson.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    1 h y 4 m
  • Fyrsti þáttur: Upp á palli
    Jul 1 2024

    Í fyrsta þættinum skoðum við upphaf útihátíða á Íslandi eftir miðja síðustu öld. Við skoðum sérstaklega stórar hátíðir sem fram fóru á tímabilinu 1968-1980. Komið verður við í Húsafelli, við fræðumst um Saltvík 71 og Rauðhettuhátíðir sem haldnar voru við Úlfljótsvatn.


    Viðmælendur í þættinum eru Stefán Pálsson, Jakob Frímann Magnússon, Magnús Kjartansson, Sigríður Beinteinsdóttir og Árni Guðmundsson.


    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    Más Menos
    57 m