Episodios

  • #20 Nicolas Cage - Heilög þrenning!
    Jun 3 2024

    Hér eru lýsingar óþarfi, það þekkja allir tímamótaverkin sem hér eru undir The Rock, Face Off og Con Air🔥

    En nú er þetta búið í bili milli okkar og Nicolas Cage. Við kveðjum hann með þessum síðasta þætti um hann í bili, og hlökkum til að kanna önnur spennandi viðfangsefni í framhaldinu.

    Más Menos
    1 h y 41 m
  • #19 Nicolas Cage - Bringing out the dead
    May 27 2024

    Sjúkraflutningarmaður berst við andleg veikindi vegna mikillar streitu í vinnunni. Við fylgjumst með andlegri hnignun Franks á ferðalagi sínu um götur New York borgar þar sem hann reynir sitt besta að bjarga lífum þeirra sem minna mega sín.

    Allt við þessa mynd ætti að segja okkur að þetta sé meistarastykki, skrifuð eftir metsölubók, handritið á gæjinn sem gerði Taxi Driver og Raging Bull, leikstjórinn er Martin Scorsese og leikararnir eru allir í hæsta gæðaflokki.

    Tekst þetta? Hver veit. Komist að því í þessum þætti af Video Rekkanum.

    Más Menos
    1 h y 7 m
  • #18 Nicolas Cage - The Unbearable Weight Of Massive Talent
    May 20 2024

    Kvikmyndastjarna leggur leið sína til Mallorca til að taka þátt í afmælishátíð óþekkts milljarðamærings. En allt er ekki sem sýnist; áður en langt um líður, er stjarnan komin á kaf í flókinn lygavef bandarísku leyniþjónustunnar og reynir í örvæntingu að bjarga dóttur pólitíkuss.

    Myndin er á sama tíma spennuþrungin hasarmynd, ævintýraferð, gamanmynd, djúpstæð drama, andrúmsþrungin spennumynd og rómantísk ástarsaga. Allt þetta og meira til í þessum þætti Video Rekkans.

    Más Menos
    1 h y 8 m
  • #17 Nicolas Cage - The Pig
    May 13 2024

    Einsetubúi nokkur lendir í kröppum dansi þegar trufflusvíninu hans er stolið um miðja nótt, af óprúttnum aðilum, og hann neyðist til fara aftur til borgarinnar í samfélag mannanna í leit að sínu ástkæra svíni.

    Það mætti að segja að hér væri á ferðinni endurgerð af John Wick, nema núna er hann kokkur og leynisvopnið hans eru bragðlaukar frekar en ofbeldi.

    Más Menos
    57 m
  • #16 Nicolas Cage - Mandy
    May 6 2024

    Skógarhöggsmaður lendir í kröppum dansi þegar ofsatrúarhippacult fær afbriðgilegan áhuga á konunni hans. Hér blandast saman stórkostleg tónlist Jóhanns Jóhannssonar og listileg kvikmyndataka Panos Cosmatos. Hér eru ofboðslega mikið af litum, ofboðslega mikið af blóði, ofboðslega mikið af litaleiðréttingu, ofboðslega mikið að dauða og myrki. Hér er mynd sem engin hefði/ætti að láta framhjá sér fara og svo náttúrulega hlusta á þennan þátt :)

    Más Menos
    1 h y 7 m
  • #15 Nicolas Cage - Sorcerer's Apprentice
    Apr 29 2024

    Lærlingur Merlins fær það verkefni að finna arftaka læriföður síns, en það er eina leiðin til að bjarga heiminum frá glötun. Þetta er í senn ástarsaga og ævintýri, hvað gæti mögulega klikkað! Þið getið komist að því í nýjasta þætti Video Rekkans.

    Más Menos
    1 h y 13 m
  • #14 Nicolas Cage - Next
    Apr 22 2024

    Töframaður með ofurkrafta verður miðdepill aðgerða FBI til að stöðva kjarnorkusprengju sem hryðjuverkamenn ætla að sprengja í miðborg Los Angeles. Hér er olíuborinn húð, brjóstaskorurnar halda áfram, hárið heldur áfram að vera furðulegt og síðast en ekki síst ekki örvænta, vondu kallarnir eru þýskir... Allt þetta og meira til í þessum þætti!

    Más Menos
    1 h y 12 m
  • #13 Nicolas Cage - Ghost Rider
    Apr 15 2024

    Bældur drengur í tilvistarkreppu gerir svona eiginlega næstum því samning við kölska, sem á eftir að draga dilk á eftir sér, svolítið eins og Sæmundur Fróði í Svartaskóla. En í þessari sögu birtast okkur magavöðvar, brjóstaskorur, biblíusögur, voldugt yfirvaraskegg og margt fleira. Allt þetta og meira til í þessum þætti af Video Rekkanum

    Más Menos
    1 h y 6 m