Það skiptir máli  Por  arte de portada

Það skiptir máli

De: Ghost Network®
  • Resumen

  • Það skiptir máli – hlaðvarpsþættir – Björn Jón Bragason spyr Jón Steinar Gunnlaugsson spjörunum úr. Í þessum hlaðvarpsþáttum gerir Jón Steinar Gunnlaugsson grein fyrir hugmyndum sínum um stjórnskipulega stöðu dómstóla og skýrir ástæður þess að þeir fara ekki með vald til að setja nýjar lagareglur, t.d. með því að beita ekki ákvæðum stjórnarskrár eða almennra laga í þágu viðhorfa sem dómendur kunna sjálfir að hafa en birtast ekki í lögum. Víkur hann að fjölda dæma þar sem Hæstiréttur hefur brotið gegn þessu með því að taka sér vald sem dómstólar hafa ekki.
    Copyright 2023 Ghost Network®
    Más Menos
activate_primeday_promo_in_buybox_DT
Episodios
  • 6. Leiðir til úrbóta
    Sep 27 2021

    6. þáttur. Leiðir til úrbóta.

    Einstök mál fari aldrei á þrjú dómsstig. Fækka beri dómurum í Hæstarétti og e.t.v. líka í Landsrétti. Gagnsæi er lausnarorðið. Alþingi yfirheyri dómaraefni í heyranda hljóði. Einstakir dómarar í fjölskipuðum dómum skrifi atkvæði sín sjálfir.

    Más Menos
    15 m
  • 5. Ýmis þekkt dómsmál
    Sep 20 2021

    5. þáttur. Ýmis þekkt dómsmál.

    Farið er yfir ýmis þekkt dómsmál, þar sem Jón Steinar hefur verið málflytjandi. T.d. mál vegna brottvikningar forseta Hæstaréttar úr embætti og frelsi til tjáningar um þann dóm. Í því samhengi er vikið að kærleiksævintýri Jóns við Sigurð Líndal lagaprófessor sem hafði verið einn af stofnendum Málfrelsissjóðs nokkrum árum áður. Þá er rætt um sérkennilega atburði í tengslum við breytingar á lagareglum um bætur fyrir gæsluvarðhald að ósekju. Vikið er að svonefndu prófessorsmáli og eftirmálum þess og loks að máli þar sem Hæstiréttur braut gegn málsmeðferðarreglum í því skyni að sýkna íslenska ríkið af bótakröfum barns vegna mistaka við fæðingu þess. Loks er talað um sönnunarfærslu í erfiðum sakamálum, svo sem málum vegna kynferðisbrota.

    Más Menos
    40 m
  • 4. Vanhæfir dæmdu þeir
    Sep 13 2021

    4. þáttur. Vanhæfir dæmdu þeir.

    Hér er m.a. sagt frá því að fimm dómarar í Hæstarétti svöruðu ekki í maí 2010 spurningum frá fréttamönnum um fjármálatengsl sín við bankana fyrir hrun. Tekið var fram að spurt væri til að unnt væri að meta hæfi dómaranna til að dæma í málunum. Þeir settust svo í dóma í refsimálum gegn forsvarsmönnum bankanna og héldu þá að enginn vissi um þessi tengsl. Síðar var svo upplýst um þau. Kom þá í ljós að sumir þeirra höfðu vanhæfir dæmt.

    Þá er vikið að því hvort yngstu dómararnir í réttinum nú séu líklegir til að beita hinum framsæknu lögskýringum á sama hátt og fyrirrennarar þeirra gerðu. Talað er um klíkuveldið sem ræður m.a. vali á nýjum dómurum í réttinn. Dæmi verða nefnd um misnotkun dómsvaldsins: Blöndun verður bruggun. Hæstiréttur breytir dómskerfinu en það átti undir Alþingi að annast það. Frelsi til að standa utan félaga. Samningar dómara um niðurstöður gera forsendur oft óskýrar.

    Más Menos
    35 m

Lo que los oyentes dicen sobre Það skiptir máli

Calificaciones medias de los clientes

Reseñas - Selecciona las pestañas a continuación para cambiar el origen de las reseñas.