VÍDJÓ  By  cover art

VÍDJÓ

By: Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli
  • Summary

  • Hugleikur Dagsson og Sandra Barilli horfa á mikilvægustu myndir allra tíma. Á hverjum þriðjudegi kemur nýr þáttur sem er tileinkaður einni mynd af ótæmandi lista bíómynda sem Sandra hefur ekki séð áður. Þau skeggræða hverja mynd fyrir sig og allt það sem henni við kemur og það sem þeim dettur í hug líka.
    © 2023 Barilli Enterprises
    Show more Show less
Episodes
  • 110 Babbi segir (The Godfather)
    Dec 28 2023

    Höfuð fjölskyldunnar lendir í bráðri lífshættu eftir skotárás og er einnig kominn á aldur svo þá þarf að finna hæfan arftaka í systkinahópnum, sem getur viðhaldið veldinu sem er búið að byggja upp. Af þremur bræðrum kemur einn sterklega til greina, og hann byrjar á að fá vandasamt verkefni í hendurnar.

    Show more Show less
    1 hr and 52 mins
  • 109 Jólin dúkka upp (The Muppet Christmas Carol)
    Dec 19 2023

    Heldri maður og lánadrottinn er viðskotaillur í samskiptum sínum við starfólkið sitt og raunar allt fólk sem hann umgengst. Á jólanótt er hann svo heimsóttur af draugum sem veita honum nýja sýn á lífið.

    Show more Show less
    1 hr and 21 mins
  • 108 Ríðingafélagið Grímur (Eyes Wide Shut)
    Dec 12 2023

    Eiginmaður og faðir kemst á snoðir um ankannalega skemmtun sem felur í sér mikla nekt, samfarir og grímunotkun, og langar mjög mikið að komast í veisluna án þess að láta eiginkonuna sína vita. Hann hverfur út í nóttina undir því yfirskini að vera að sinna sínum sjúklingum en reynir í staðinn eftir fremsta megni að sænga hjá ókunnum konum.

    Show more Show less
    1 hr and 35 mins

What listeners say about VÍDJÓ

Average customer ratings

Reviews - Please select the tabs below to change the source of reviews.