Jón Ólafs á spjallinu Podcast By Jón Ólafsson cover art

Jón Ólafs á spjallinu

Jón Ólafs á spjallinu

By: Jón Ólafsson
Listen for free

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.2025 Social Sciences
Episodes
  • 30.þáttur: Guðrún Gunnarsdóttir
    May 12 2026

    Guðrún hóf söngferil sinn sem meðlimur í MK-kvartettinum og í framhaldi tók svo vísnatónlistin við. Hún leitaði á vit ævintýranna í Noregi áður en hún sneri aftur heim. Við tóku ýmis söngverkefni og hún komst fljótt í röð okkar fremstu söngkvenna með sinni áheyrilegu rödd. Það lá fyrir henni að starfa í fjölmiðlum og hefur hún stýrt ýmsum þáttum á ljósvakamiðlum landsins. Í dag er það "Mannlegi þátturinn" sem hún stýrir ásamt Gunnari Hanssyni á Rás 1.

    Show more Show less
    1 hr and 48 mins
  • 29.þáttur: Andrea Jónsdóttir
    Apr 28 2026

    Andrea hefur fjallað um tónlist á einn eða annan hátt í áratugi og oft nefnd Rokkamma Íslands. Þegar hún heyrði Be Bop A Lula í fyrsta sinn varð hún heltekin af rokktónlist. Hún ólst upp við Elvis, Bítlana og Hljóma og elti þá síðastnefndu á röndum landshorna á milli. Hún starfaði lengi sem prófarkalesari á Þjóðviljanum og kunni vel við sig innan um kommana enda alin upp af félagshyggjufólki. Andrea hefur starfað sem plötusnúður á Dillon í 26 ár og er hvergi nærri hætt, 77 ára gömul.

    Show more Show less
    1 hr and 45 mins
  • 28.þáttur: Rúnar Freyr Gíslason
    Apr 17 2026

    Um miðjan aldur var Rúnar Freyr búinn að brenna allar brýr að baki sér þrátt fyrir glæstan feril sem leikari og söngvari. Við tók bataferli sem mun standa yfir út lífið að hans sögn. Hann hefur heldur betur snúið við blaðinu, bætt ráð sitt og gert sig gildandi á ýmsum sviðum m.a. hjá SÁA, RUV og sem fjölmiðlamaður. Rúnar á mörg börn og eina dóttur sína hitti hann fyrst þegar hún var orðin 10 ára gömul. Þessa dagana heimsækir hann fólk og vinnustaði enda í framboði til borgarstjórnar í Reykjavík.

    Show more Show less
    1 hr and 42 mins
adbl_web_anon_alc_button_suppression_c
No reviews yet