• Jóhanna Birna - Háskólastúdent á framabraut
    Mar 3 2023

    Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir hefur á síðustu misserum vakið þónokkra athygli en hún hélt nýlega fyrirlestra á ráðstefnu BUGL og málþingi ÖBÍ. Í fjórtánda þætti Lífið með ADHD settist hún niður með Bóasi Valdórssyni og þau töluðum um uppvaxtarár hennar og þá baráttu sem hún hefur háð til þess að komast á þann stað sem hún er nú á og þá sigra sem hún hefur náð og hvernig sýn hennar er á menntakerfið. Upptöku af fyrirlestrum hennar og greinar um efnið er að finna á heimasíðu Jóhönnu; https://www.johannabirnabjartmars.com/"

    Viðtal við Jóhönnu Birnu á Hringbraut

    Viðtal við Jóhönnu Birnu á mbl.is

    Show more Show less
    1 hr and 25 mins
  • Sólveig Ásgrímsdóttir - ADHD og eldra fólk
    Jan 12 2023

    Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur settist niður með Guðna Rúnari Jónassyni verkefnastjóra ADHD samtakanna og þau ræddu málefni sem eru Sólveigu nærri en það er staða eldri borgara með ADHD og athuganir sem hún hefur verið að fást við tengt efninu.

    Show more Show less
    35 mins
  • Anna Tara Andrésdóttir
    Nov 1 2022

    Í þættinum í dag kom Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi í viðtal og fjallaði vítt og breytt um ADHD, rannsóknir og um ýmislegt praktískt því tengdu. 

    https://annatara.is/

    Byggja skoðanir fólks á ADHD lyfjum á rann­sóknum?

    Fólk með ADHD tvöfallt líklegra til að skilja

    „Áunninn athyglisbrestur er ekki til“

    Show more Show less
    56 mins
  • ADHD, teikningar og daglegt líf
    May 21 2022

    Í þættinum í dag hitti ég Ara. H. G. Yates teiknar og rithöfund. Við spjölluðum m.a. um það hvernig það kom til að hann skrifaði bók með ungum vini sínum um dag í lífi drengs með ADHD. Einnig spjölluðum við um hvernig það kom til að Ari varð teiknari og ýmsar hliðar af ADHD í daglegu lífi.

    Elli - Dagur í lífi drengs með ADHD

    Show more Show less
    1 hr and 2 mins
  • Gunnar Helgason
    Dec 16 2021
    Gunnar Helgason barnabókarithöfund og leikari kom í spjall og sagði okkur frá mömmu sinni, facebook rannsóknum sínum og nýju bókinni sinni sem heitir Alexander Daníel Hermann Dawidsson (ADHD): Bannað að eyðileggja sem kom út núna fyrir jólin og fjallar um Alexander Daníel Hermann Dawidsson sem er með ADHD en það er allt í lagi - nema þegar lífið tekur upp á því að fara á hvolf. Bannað að eyðileggja er spennandi saga um Alexander og Sóleyju bekkjarsystur hans, litríku fjölskyldurnar þeirra, mömmuna sem er farin og kennarann sem ætti ekki að fá að vinna með börnum.
    Show more Show less
    35 mins
  • Glowie - tónlistarkona
    Nov 12 2021
    Sara Pétursdóttir, betur þekkt undir listamannanafninu Glowie settist niður með Bóas Valdórssyni og ræddu hennar reynslu af því að alast upp með ADHD. Glowie gaf út í síðastliðnum mánuði nýtt lag og myndband sem hún tileinkaði ADHD sem hún kallar sinn ofurkraft. Ekki nóg með að hafa búið til þetta lag þá leikstýrði hún einnig myndbandinu sjálf auk þess að skrifa grein í tónlistartímaritið Clash Magazine og búa til myndasögu um sína reynslu. 1. https://open.spotify.com/track/1yGxXegHokxaCMkgVjcNco?si=4d68987a9ee14bcc 2. https://www.youtube.com/watch?v=TFCkfngAMM4 3. https://genius.com/Glowie-adhd-lyrics 4. https://www.facebook.com/photo/?fbid=307731161164207&set=pcb.307734931163830
    Show more Show less
    57 mins
  • Björn Þorfinnsson, skákmaður og ritstjóri
    Aug 20 2021
    Lífið með ADHD kemur úr sumarfríi með glænýjan þátt og viðtal við Björn Þorfinnsson skákmann og ritstjóra DV. Björn fékk greiningu á fullorðinsaldri og talar meðal annars um það hvernig hann telur ADHD hafa verið honum styrkleiki í skákheimiinum.
    Show more Show less
    33 mins
  • Bóas Valdórsson nýr meðlimur hlaðvarpsins
    Jun 7 2021
    Að þessu sinni í hlaðvarpsþættinum Lífið með ADHD verður örlítið óhefðbundið spjall milli núverandi og nýs meðlims, og þáttastjórnanda, hlaðvarpsins. Bóas Valdórsson hefur komið að ADHD á mörgum sviðum, unnið með börnum og unglingum og var meðal annars einn af stofnendum sumarbúða fyrir börn með ADHD. Hann gengur nú til liðs við Karitas í þáttunum og spjalla þau um lífið með ADHD og framhald þáttanna.
    Show more Show less
    37 mins