• 6. Lítill drengur með frómas í hausnum

  • Jan 23 2022
  • Duración: 50 m
  • Podcast

6. Lítill drengur með frómas í hausnum  Por  arte de portada

6. Lítill drengur með frómas í hausnum

  • Resumen

  • Rauðsíldarflaggið er úr sögunni en rauðir fánar alls staðar í lífi Anítu og félaga, enda púslin hægt og bítandi farin að smella saman á meðan fleiri spurningar raðast upp. Grímur falla, kúli er tapað og verða ‘mömmukomplexar’ allsráðandi en á þessu stigi í sögunni verður ekki aftur snúið. Til að bæta gráu ofan á svart er ömurlegasta pizzukvöld allra tíma í vændum á heimili Elínar.

    Nú eru það eitraðir sjarmörar og vafasamir mömmustrákar sem koma rakleiðis til umræðu hjá Tómasi og Baldvini, auk þess hvernig meira er í Fríðu og Ragnar spunnið en áður bar að geta. Tómas telur tilvísanir í Alfred Hitchcock vera þarna nokkrar skýrar og kemst ekki hjá því að ræða fyndnu fjarvistarsönnunina og leiktakta Kolbeins Arnbjörnssonar.

    Baldvin segir frá földum konfektmolum sögunnar, „föndurpitsu“ og rifjar einnig upp hvernig ferlið gekk fyrir sig að skjóta sjónvarpsseríu þegar COVID-faraldurinn var nýfarinn að herja á heimsbyggðina. Þá er líka varpað ljósi á breyttu tíma kvikmyndagerðar á Íslandi, spuna á setti og óvænta tengingu Tómasar við framleiðslu seríunnar - en þar er einmitt heimili Elínar í brennidepli.

    Búið ykkur undir ‘Sækó-súpu’.


    Más Menos
activate_primeday_promo_in_buybox_DT

Lo que los oyentes dicen sobre 6. Lítill drengur með frómas í hausnum

Calificaciones medias de los clientes

Reseñas - Selecciona las pestañas a continuación para cambiar el origen de las reseñas.