• Hve þung er þín krúna: Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson FIDE meistarar

  • Jun 19 2024
  • Duración: 57 m
  • Podcast

Hve þung er þín krúna: Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson FIDE meistarar  Por  arte de portada

Hve þung er þín krúna: Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson FIDE meistarar

  • Resumen

  • Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson eru mættir Við skákborðið til Kristjáns Arnar að þessu sinni. Meginefni þáttarins er umfjöllun um nýja bók eftir Sigurbjörn sem er að koma út í komandi viku. Hve þung er þín krúna er söguleg skáldsaga sem segir frá heimsmeistaraeinvíginu í skák á Íslandi á nýstárlegan hátt. Hún greinir frá því hvernig íslensku skipuleggjendurnir tókust á við margvísleg vandamál sem komu upp við skipulagningu einvígisins og það hvernig þeir Spasskí og Fischer tókust á við álagið og sundrungina sem kom upp i herbúðum beggja aðila, sumarið 1972 þegar skák varð miðdepill heimsfréttanna.

    Höfundur bókarinnar Sigurbjörn J. Björnsson er margreyndur skákmaður, fyrrverandi skákmeistari Reykjavíkur og núverandi Íslandsmeistari skákfélaga með skákdeild Fjölnis.

    Í þættinum koma þeir félagar inn á ákvörðun aðalfundar Skáksambands Íslands um að halda áfram útgáfu tímaritsins Skákar á prentformi en stjórn sambandsins hafði fyrr á árinu ákveðið að hætta útgáfunni , Fjórmenningaklíkuna sem heldur á heimsmeistaramót 50 ára og eldri í Kraká í Póllandi í byrjun júlí, Hans Moke Niemann sem aftur hefur rofið 2700 alþjóðlega skákstigamúrinn, Madrid Chess Festival þar sem ýmis leiðindi voru fyrirferðamikil, ásakanir um svindl o.fl. Einng kom fram að Jeanne Cairns Sinquefield, meðstofnandi Saint Louis Chess Club, tilkynnti við upphaf Cairns Cup mótsins í síðustu viku að fimm fyrstu bandarísku konurnar sem næðu stórmeistaratitli fyrir 4. júlí 2029 yrðu verðlaunaðar sérstökum "Cairns Chess Queens" verðlaunum að upphæð 100.000 dollurum eða um 14. milljónum íslenskra króna. Alþjóðaskáksambandið hefur ákveðið að heimsmeistaramótið í at- og hraðskák skuli fara fram í New York í Bandaríkjunum á milli jóla og nýárs og

    Más Menos
activate_primeday_promo_in_buybox_DT

Lo que los oyentes dicen sobre Hve þung er þín krúna: Sigurbjörn J. Björnsson og Björn Ívar Karlsson FIDE meistarar

Calificaciones medias de los clientes

Reseñas - Selecciona las pestañas a continuación para cambiar el origen de las reseñas.