Episodios

  • Social Chameleon #30 – Veigar Páll í spjalli um tímabilð, háskólaboltann og Njarðvík
    Jul 3 2024

    Dominykas Milka ræðir við Veigar Pál Alexandersson samherja sinn hjá Njarðvík um nýliðið tímabil, háskólaboltann í Bandaríkjunum, Njarðvík og margt fleira. Veigar kom aftur til Njarðvíkur um mitt síðasta tímabil úr háskólaboltanum þar sem hann var á mála hjá Chowan Hawks í Norður Karólínu.


    Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils, Subway og Lengjunnar.

    Más Menos
    1 h y 2 m
  • Social Chameleon #29 – 2023/24 uppgjör, dómgæsla og verðlaunaafhendingar
    Jun 20 2024

    Dominykas Milka ræðir við Davíð Eld ritstjóra Körfunnar um síðasta tímabil í Subway deildinni, lokahóf og verðlaunaafhendingar.


    Social Chameleon er í boði Kristalls, Lykils, Subway og Lengjunnar.

    Más Menos
    1 h y 18 m
  • Tvígrip: Einn langur fyrir sumarfrí - Falur, Tómas, Kostas og Friðrik Ingi á línunni
    Jun 10 2024

    Konstantinos "Kostas" Tsartsaris grikkinn úr Grindavík í viðtali, lyfjamál í körfuboltanum, útlendingar koma og fara eins og venjulega nema núna voru óvenju margir. Tómas Tómasson fór yfir þau mál með okkur.

    Falur Harðarsson fór yfir ferilinn sinn, hann sagði okkur frá því hvernig það kom til að spila körfubolta fyrir kirkjuna sína í USA. Friðrik Ingi Rúnarsson mætti einnig í viðtal til okkar og fór yfir sinn feril bæði sem leikmaður og þjálfari. Grindvíkingar reka sinn dáðasta son og fullt af allskonar í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí í 10. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð.

    Podcast Körfunnar er í boði Lykils, Subway, Kristalls, Lengjunnar og Tactica.

    Más Menos
    5 h y 6 m
  • Fyrstu fimm: Arnar Guðjónsson
    Jun 10 2024

    Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer þjálfarinn Arnar Guðjónsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur þjálfað á ferlinum. Eftir margra ára starf sem þjálfari verður Arnar í fyrsta skipti ekki með lið á næstu leiktíð, en hann yfirgaf Stjörnuna nú í lok þessa tímabils og er farinn að vinna fyrir KKÍ.

    Þrátt fyrir að vera aðeins 37 ára gamall má segja að Arnar hafi þjálfað ansi lengi. Fyrsta starf hans var hjá Sindra 2005, þaðan fór hann svo til FSu 2007, en 2009 lagðist hann í víking til Danmerkur þar sem hann var á mála hjá bæði Aabyhøj og Svendborg þangað til hann kom aftur heim 2018 og tók við Stjörnunni. Þá var hann lengi í þjálfarateymi íslenska landsliðsins og nú síðast 2022-2023 í þjálfarateymi danska landsliðsins.

    Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.



    Más Menos
    1 h y 16 m
  • The Uncoachables: No More Basketball
    Jun 3 2024

    Helgi, David and Jeanne finally meet up a few days after the last game of the season. We begin by skimming over all games in the men and women's Subway league semifinals and go into the winners of the first division playoffs for who gets promoted. We finally discuss the finals and wrap everything up by going over the gossip and news. Enjoy!

    Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat

    The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.


    Más Menos
    1 h y 13 m
  • Fyrstu fimm: Páll Kolbeinsson
    Jun 2 2024

    Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer KR-ingurinn Páll Kolbeinsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann spilaði með á ferlinum.


    Páll var á sínum tíma einn besti bakvörður Íslands, en á feril sínum 1981 til 1998 lék hann fyrir tvö lið, KR, Tindastól og University of Wisconsin–Oshkosh Titans í bandaríska háskólaboltanum. Þá lék hann frá 1986 til 1992 43 leiki fyrir íslenska landsliðið. Besta tímabil Páls var líklega 1989-90, en þá var hann valinn leikmaður ársins eftir að hafa leitt sína menn í KR til Íslandsmeistaratitil. Samhliða feril sínum sem leikmaður fór hann einnig að þjálfa, en hjá Tindastóli og KR var hann í nokkur ár þjálfari meistaraflokks.


    Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

    Más Menos
    53 m
  • Aukasendingin: Úrslitin, verðlaunaafhending fyrir tímabilið og orðið á götunni
    May 30 2024

    Aukasendingin fékk Mumma Jones þjálfara og Siggeir Ævarsson blaðamann til þess að fara yfir fréttir vikunnar, orðið á götunni, lokaúrslitin í Subway deild karla og margt fleira. Þá er undir lokin farið í verðlaunaafhendingu fyrir nýafstaðið tímabil, þar sem veitt eru verðlaun í hefðbundnum og óhefðbundnum flokkum.


    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.

    Más Menos
    1 h y 14 m
  • Aukasendingin: Fréttir vikunnar, úrslitin í Subway og heitasta slúðrið
    May 21 2024

    Aukasendingin fékk Árna Jóhannsson og Siggeir Ævarsson blaðamenn til þess að fara yfir úrslitin í Subway deildunum, leikmenn erlendis, fréttir vikunnar og heitasta slúðrið. Þá er einnig farið yfir nokkrar skemmtilegar línur sem þjálfarar og leikmenn hafa látið útúr sér á síðustu árum, sem og hvar Siggeir væri helst til í að búa.


    Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.

    Más Menos
    1 h y 4 m