• Guðmundur Ingi Þorvaldsson

  • May 26 2024
  • Length: 1 hr and 18 mins
  • Podcast

Guðmundur Ingi Þorvaldsson

  • Summary

  • Guðmundur Ingi Þorvaldsson listamaður, viðmælandi Mumma í nýjasta þætti Kalda Pottsins er líklega hvað þekktastur sem leikari en hann er einnig fantaflottur leikstjóri og tónlistarmaður svo eitthvað sé nefnt. Hann er Borgfirðingur úr Reykholtsdalnum og þótt hann elskaði sveitina sem lítill adhd gaur þá ólgaði alltaf í honum ævintýraþrá og löngun í nýjar áskoranir sem hefur fylgt honum allar götur síðan. Hann ætlaði sér alltaf að læra til prests en fór af einskærri tilviljun í inntökupróf í leiklistarskólann áður en hann innritaði sig í guðfræðina og þar með var ekki aftur snúið. Guðmundur Ingi er fyrir stuttu kominn frá Marokkó þar sem hann lék á móti Anthony Hopkins í Hollywood mynd og nýlega kom út tölvuleikurinn Hellblade II þar sem hann leikur Fargrím, eitt af stærri hlutverkum leiksins. Í þættinum ræða þeir Mummi á einlægu nótunum uppvöxtinn í sveitinni, leikhúsið og tilfinningalega rússibanann sem fylgir því að vera mannvera.

    Show more Show less

What listeners say about Guðmundur Ingi Þorvaldsson

Average customer ratings

Reviews - Please select the tabs below to change the source of reviews.