• Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson

  • Jul 10 2024
  • Length: 1 hr and 1 min
  • Podcast

Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson  By  cover art

Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson

  • Summary

  • Gestir þáttarins í dag eru þeir Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðingur, áhugaskákmaður og fyrrverandi trillukarl og Gauti Páll Jónsson, fyrrverandi formaður Taflfélags Reykjavíkur, sagnfræðingur og ritstjóri tímaritsins Skákar.

    Sveinbjörn sagði frá skákstarfinu á Súgandafirði og á Vestfjörðum hér á árum áður en Sveinbjörn sá meðal annars um skólaskák á Vestfjörðum um árbil. Hann sagði frá sterkum skákmönnum á Vestfjörðum og minntist á að Jóhann Þórir hefið haldið eitt af sínu frægu helgarskákmótum á Suðureyri við Súgandafjörð. Sveinbjörn er hagyrðingur góður og hefur samið margar vísur, lög og texta og fór hann með tvær skáktengdar vísur í þættinum. Spiluð voru tvö lög eftir Sveinbjörn. Lagið Driftwood sem fjallar um eilífðina, hafið og rekavið en hann tileinkaði lagið Hrafni Jökulssyni skákfrömuði sem jarðsettur var í kistu úr Vestfirskum rekaviði og lagið Ættfræði óttans sem er andsvar Sveinbjörns við setningu Einars Ben: "Ótti er virðingar faðir og móðir" en Sveinbjörn hefur miklar mætur á skáldinu Einari Ben.

    Gauti Páll sagði frá starfinu í Taflfélagi Reykjavíkur og mótahaldi félagsins í sumar en félagið er eitt af fáum skákfélögum sem heldur starfinu gangandi yfir sumarmánuðina. Hann rifjaði upp að þeir Sveinbjörn hafi telft saman í Gallerý Skák fyrir u.þ.b. 10 árum og að síðasa skák þeirra, sem var kappskák, hafi endað með jafntefli. Að launum fékk hann breitt bros frá hógværum Sveinbirni.

    Þeir félagar ræddu svo um heimsmeistaramót 50 ára og eldri sem fram fer í Kraká í Póllandi en síðasta umferðin verður tefld á morgun. Íslenska sveitin, skipuð "fjórmenningaklíkunni" frægu ásamt stórmeistaranum Þresti Þórhallssyni, leiddi mótið fyrir 7. umferð sem tefld var í gær gegn feykisterkri sveit Bandaríkjamanna. Íslenska sveitin var ein í efsta sætinu fyrir umferðina en tapaði viðureigninni (1-3) og á því veika von á að hremma gullið nema bandaríska sveitin misstígi sig í síðustu tveimur umferðunum. Íslenska sveitin á þó enn góða möguleika á að enda á verðlaunapalli.

    Tal barst að unga og efnilega skákfólkinu okkar og hinum argentíska Faustino Oro sem í síðasta mánuði varð yngsti alþjóðlegi skákmeistari skáksögunnar og sló þar með met hins bandaríska Abhimanyu Mishra um einn mánuð og fjóra daga. Faustiono er aðeins 10 ára gamall, fæddur 14. október 2013 en nýverið vann hann bestu skákmenn heims, heimsmeistarana Magnús Carlsen og Hikaru Nakamura, í hraðskák (1. og 3. mínútna skákir) á skákþjóni vefsíðunnar Chess.com.

    Show more Show less
activate_primeday_promo_in_buybox_DT

What listeners say about Hæfileikamennirnir Sveinbjörn Jónsson og Gauti Páll Jónsson

Average customer ratings

Reviews - Please select the tabs below to change the source of reviews.